Heim

Sessý & Sjonni

Jóladagskrá

Brúðkaup

Aðrar uppákomur

Lagalisti

Hlustaðu á mig

Hafa samband

 

 

 

 

Myndir

Um Sessý


 

 



 

Sessý


Aðrar uppákomur
Ef árshátíð, þorrablót, stórafmæli, gæsapartý, ferming, skírn eða önnur skemmtileg tímamót eru í vændum er alltaf gaman að bjóða uppá lifandi tónlist. Bæði er gaman að bjóða upp á tónlistaratriði ef maður er gestgjafi en einnig getur verið spennandi að koma t.d. afmælisbarninu eða brúðhjónunum á óvart með óvæntri uppákomu.

Hægt er að bjóða uppá söngatriði yfir borðhaldi, í partýi, í stórri eða lítilli veislu, í sal eða heimahúsi og eru möguleikarnir endalausir. Mögulegt er að panta söng án undirleiks, hafa píanóundirleik (ef píanó er fyrir hendi á staðnum) eða fá dúettinn Sessý&Sjonni (kassagítar og söngur - nánar hér). Svo býð ég einnig upp á að mæta án undirleikara en með playback á diski og er hægt að velja tónlist milli himins og jarðar, til að nefna nokkur dæmi væri hægt að útvega jazzatriði, blús, pop, létt rómantíska stemningu, suðrænt og seiðandi og fleira. Bendi ég fólki á að líta hingað til að fá hugmyndir um hvernig ég syng en þar má finna nokkur dæmi með mismunandi stefnum tónlistar.

 

Sessý - gsm: 697-4688 - sessy@sessy.net