|
Athöfnin:
Brúðkaup er einn mikilvægasti atburður í
lífi brúðhjóna og á þeim
merkisdegi er fegurð lífsins í hávegum
höfð. Allt er gert til að fullkomna upplifunina og að
mínu mati er vel valin og vel flutt tónlist einn af
hápunktum þessarar hamingjustundar. Tónlistin
færir augnablikið á hærra plan og leyfir
fólki að lifa sig inn í rómantíkina.
Í
athöfninni er algengt að sungin séu 2-4 lög, valin
af brúðhjónum í samráði við
söngvara. Algengt er að hafa einn sálm og 1-3
rómantísk og falleg dægurlög. Hægt er
að fá nokkrar hugmyndir um lagaval hér
en að sjálfsögðu syng ég einnig eftir
beiðni.
Minn
metnaður sem söngkona við þetta tilefni er að
flytja fallegan söng með mikilli tilfinningu því
dagur þessi er einmitt dagur tilfinninga og er athöfnin
heilög stund. Einnig þykir mér mikilvægt að
hafa smáatriði á hreinu því
það síðasta sem brúðhjón
þurfa er óvæntar uppákomur og
óáreiðanleiki á brúðkaupsdaginn.
Veislan:
Í brúðkaupsveislunni er algengt að
tónlistarfólk sé ráðið til að
bjóða uppá lifandi tónlistaratriði.
Hægt er að hafa ýmis konar tónlistaratriði,
í byrjun veislu meðan kokteill stendur yfir, yfir
borðhaldi eða síðar um kvöld sem
skemmtiatriði.
Ég hvet
fólk eindregið til að hafa samband við mig og
viðra hugmyndir sínar og þá getum við
örugglega komist að samkomulagi. Möguleikarnir eru margir
og er alltaf hægt að komast að samkomulagi og gera
brúðkaupsdaginn fullkominn.
Sessý -
gsm: 697-4688 - sessy@sessy.net
|